Fyrri ferð Herjólfs í dag, miðvikudag fellur niður vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina. Athugun með síðari ferð dagsins verður klukkan 13:00 en klukkan 6:00 í morgun var 27 metra meðalvindhraði á Stórhöfða. Þá var ölduhæð á Surtseyjardufli rúmir átta metrar í morgun.