Fréttir hafa undir höndum bréf til ÍBV-íþróttafélgas þar sem því er beint til framkvæmdastjóra hvort eigi að halda þjóðhátíð í ár vegna fjölda nauðgana á síðustu þjóðhátíð. Í öðru lagi af hverju engu af innkomu hátíðarinnar er varið til áróðurs gegn nauðgunum. Í þriðja lagi hvort ÍBV muni greiða þeim sem urðu fyrir kynferðisárás á Þjóðhátíð sanngirnisbætur? Undir þetta rita 100 karlmenn og í þeirra hópi eru þjóðþekktir menn, einkum úr hópi leikara og leikhúsfólks.