Leita að farþega­bát til að sigla í Landeyjahöfn

Í fréttatilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra og Guð­laugi Friðþórssyni, bæjarfulltrúa eftir fundinn kemur fram að heimamenn hafi velt upp þeim mögu­leika að fá öflugan farþega­bát, með fullt haffæri á tilgreindu hafsvæði, til að veita þjónustu með föstum ferðum í Landeyja­höfn á þeim tíma sem Herjólfur getur eingöngu siglt í Þorláks­höfn, vegna dýpis eða annarra vandamála. […]

Landeyjahöfn veiti þjónustu allt árið frá og með árinu 2015

Á seinustu vikum hafa fulltrúar Vestmannaeyjabæjar unnið náið með innanríkisráðherra, sérfræðingum innanríkisráðuneytis, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar með það fyrir augum að vinna siglingar í Landeyjahöfn úr þeim byrjunarvandamálum sem upp hafa komið. Sérstaklega hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið og líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn […]

Sigldi ekki í blíðunni

Rétt fyrir klukkan tíu á þriðju­dagsmorguninn hafði samband stýrimaður á Faxa RE, sem þá var staddur við Þrídranga á leið til Reykjavíkur af miðunum fyrir austan með um 1700 tonn af loðnu. Undrun­ar­efnið var; hvers vegna siglir Herjólfur ekki? (meira…)

Áhersla lögð á smíði nýrrar ferju og aðlögun Landeyjahafnar

Nú er í gangi blaðamannafundur í Innanríkisráðuneytinu þar sem umfjöllunarefnið er Landeyjahöfn og ferjusiglingar milli lands og Eyja. Í fréttatilkynning frá ráðuneytinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að ný ferja hefji siglingar í síðasta lagið árið 2015 og unnið sé að hugmyndum um stofnun hlutafélags um smíðina. Siglingar milli lands og Eyja verða […]

Kári greip tækifærið

„Ég var ákveðinn í að gera mitt þegar ég fékk tækifærið og er því sáttur við minn leik þótt það hefði gert hann ennþá skemmtilegri ef við hefðum unnið,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins, sem átti góða innkomu í leikinn við Spánverja í gær. Kári skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og vann […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.