Á seinustu vikum hafa fulltrúar Vestmannaeyjabæjar unnið náið með innanríkisráðherra, sérfræðingum innanríkisráðuneytis, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar með það fyrir augum að vinna siglingar í Landeyjahöfn úr þeim byrjunarvandamálum sem upp hafa komið. Sérstaklega hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið og líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn auk rannsókna og verklegra framkvæmda sem framundan eru.