„Ég var ákveðinn í að gera mitt þegar ég fékk tækifærið og er því sáttur við minn leik þótt það hefði gert hann ennþá skemmtilegri ef við hefðum unnið,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins, sem átti góða innkomu í leikinn við Spánverja í gær. Kári skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og vann fjögur vítaköst.