�?lvaður maður réðist inn í heimahús og heimtaði pening

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram nema hvað, eins og svo oft áður, var eitthvað um pústra en engar kærur liggja fyrir, enn sem komið er. Óskað var eftir aðstoð lögreglu laust eftir miðnætti þann 7. febrúar sl. í heimahús en þarna […]

Eyjakonan Sara Sigurðardóttir formaður Stúdentaráðs HÍ

Eyjakonan Sara Sigurðardóttir tók í dag við formennsku Stúdentaráðs Háskóla Íslands en Sara er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Vaka vann meirihluta í Stúdentaráði í kosningum í byrjun febrúar en Sara er í grunnámi við stjórnmálafræðideild. Sara sat í Stúdentaráði á síðasta starfsári. (meira…)

Riðlaskipting í 3. deild klár

Í morgun var birt riðlaskipting í 3. deild karla en Eyjaliðið KFS leikur í A-riðli í sumar ásamt Árborg, Berserkjum, Ísbirninum, Sindra, Stálúlfi, Vængjum Júpiters og Ægi. Þá var dregið í fyrstu umerðir bikarkeppninnar en KFS leikur í 1. umferð gegn Ármanni sunnudaginn 6. maí næstkomandi á Helgafellsvelli. Ef liðið leggur Ármann að velli, þá […]

Loðnufrysting framundan í Eyjum

Allt bendir til þess að frysting á loðnu til manneldis hefjist á næstu dögum, bæði hjá Vinnslustöð og Ísfélagi. Eitthvað hefur verið fryst hjá Ísfélaginu en stefnt er að því að hefja frystingu á næstu dögum. Hjá Vinnslustöðinni var svipað uppi á teningnum en til þessa hefur nánast allur loðnuaflinn farið í bræðslu. (meira…)

Rífandi gangur í loðnuveiðum

Nú er góður gangur í loðnuveiðum en Álsey VE landaði í gær fullfermi, eða 1.800 tonnum eftir tveggja daga túr en aflinn fór í bræðslu. Skipverjar á Álsey voru ekkert að tvínóna við hlutina, fóru strax út á miðin aftur og fengu tæplega 700 tonna kast nú í morgunsárið. Þetta kemur fram á bloggsíðu skipsins, […]

Hvað er að frétta Vestmannaeyjabær?

Er það virkilega þannig að bærinn minn treystir sér ekki til að reka leikskólann Sóla lengur? Hvað bull er þetta, af hverju á eitthvert fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu að vera betur til þess fallið að reka skólann heldur en bærinn okkar? Ef þetta snýst um sparnað þá finnst mér það hlægilegt. Um daginn las ég að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.