Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram nema hvað, eins og svo oft áður, var eitthvað um pústra en engar kærur liggja fyrir, enn sem komið er. Óskað var eftir aðstoð lögreglu laust eftir miðnætti þann 7. febrúar sl. í heimahús en þarna hafði ölvaður maður ruðst inn þar sem hann taldi húsráðanda skulda sér pening.