Allt bendir til þess að frysting á loðnu til manneldis hefjist á næstu dögum, bæði hjá Vinnslustöð og Ísfélagi. Eitthvað hefur verið fryst hjá Ísfélaginu en stefnt er að því að hefja frystingu á næstu dögum. Hjá Vinnslustöðinni var svipað uppi á teningnum en til þessa hefur nánast allur loðnuaflinn farið í bræðslu.