Skálmöld í kvöld í Höllinni

Í kvöld, klukkan 22:00 hefjast tónleikar með rokksveitinni Skálmöld í Höllinni. Skálmöld leikur rokk af bestu gerð og textarnir eru harla óvenjulegir enda fjalla þeir flestir um norræna goðafræði og íslenska fornsögu. Sveitin hefur gefið út tvær plötur, Baldur og Börn loka. Hér að neðan má hlusta á eitt laga Skálmaldar. (meira…)

Enn fjúka þakplötur í Eyjum

Þótt vindhraðinn í Eyjum hafi eitthvað minnkað í morgun, þá er enn bálhvasst og fóru vindhraðinn yfir 40 metra á sekúndu á Stórhöfða klukkan sjö í morgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út rétt í þessu þar sem þakplötur voru að fjúka en björgunarmenn hafa verið að störfum síðustu tvo sólarhringa. Stöðugur stormur hefur verið í […]

ÍBV mætir Portsmouth

Á vefnum Fótbolti.net er sagt frá því að knattspyrnulið ÍBV sé á leið í æfingaferð 9. til 17. apríl næstkomandi. Undanfarin ár hefur verið farið til Spánar en nú á að halda sig norðar í Evrópu og er ferðinni nú heitið til Englands. Þar mun liðið dvelja í Portsmouth og mun m.a. leika æfingaleik gegn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.