Á vefnum Fótbolti.net er sagt frá því að knattspyrnulið ÍBV sé á leið í æfingaferð 9. til 17. apríl næstkomandi. Undanfarin ár hefur verið farið til Spánar en nú á að halda sig norðar í Evrópu og er ferðinni nú heitið til Englands. Þar mun liðið dvelja í Portsmouth og mun m.a. leika æfingaleik gegn aðalliði Portsmouth þann 16. apríl.