Þótt vindhraðinn í Eyjum hafi eitthvað minnkað í morgun, þá er enn bálhvasst og fóru vindhraðinn yfir 40 metra á sekúndu á Stórhöfða klukkan sjö í morgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út rétt í þessu þar sem þakplötur voru að fjúka en björgunarmenn hafa verið að störfum síðustu tvo sólarhringa. Stöðugur stormur hefur verið í Eyjum rúma þrjá sólarhringa og ekki óeðlilegt að eitthvað gefi sig í þessum átökum.