Fann maríjúana við þrif á húsnæði

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu, eins og reyndar undanfarnar vikur. Helgin fór fram með ágætum en eitthvað var þó um útköll á öldurhúsin og þá vegna pústra á milli manna. Engar kærur liggja þó fyrir. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en um var að ræða afhendingu fíkniefna til lögreglu, sem fundust við […]
Poppmessa í Landakirkju í tilefni af 90 ára afmæli KFUM & K í Vestmannaeyjum

Fyrsta sunnudag í aðventu, þann 30. nóvember nk. eru 90 ár liðin frá stofnun KFUM&K í Vestmannaeyjum. Til að fagna þeim tímamótum hyggst stjórn KFUM&K í Vestmannaeyjum ásamt �?skulýðsfélagi Landakirkju bjóða öllum velunnurum félagsins til poppmessu í Landakirkju sunnudagskvöldið 23. nóvember nk. kl. 20:00. Á svæðinu verða gamalkunn andlit sem leitt hafa starf félagsins undanfarin […]
Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu hér í denn

Fyrsti og eini fundur Kótilettuklúbbs Vestmannaeyja á árinu verður laugardaginn 22. nóvember, húsið opnað kl.19:00 og matur hefst kl. 20:00. Ræðst það af fjölda klúbbfélaga hvort fundurinn verður haldinn á Háaloftinu eða í stóra salnum í Höllinni. Aðaldagskráratriði fundarins er að borða og borða mikið. Fyrst eru það vel brasaðar kótilettur með kartöflum, grænum baunum, […]
Milljarða hagnaður Ísfélagsins

Hagnaður Ísfélagsins í Vestmannaeyjum nam í fyrra 3,3 milljörðum króna eftir skatt. Félagið gerir upp í Bandaríkjadölum og nam hagnaðurinn í þeirri mynt 26,44 milljónum. Eignir félagsins nema 237,47 milljónum dollara eða 29,4 milljörðum íslenskra króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er 49,8 prósent. Hagnaður félagsins árið á undan var hins vegar 3,5 milljarðar króna. Ísfélagið var stofnað […]
Vestmannaeyjar vinna lestrarlandsleikinn

Lestrarlandsleiknum Allirlesa.is lauk um miðnætti í gær, sunnudaginn 16. nóvember á degi íslenskrar tungu. Keppnin hefur staðið yfir óslitið frá 17. október og fór þannig fram að þátttakendur sem skráðu sig fyrir upphaf keppninnar stofnuðu lið og kepptu innbyrðis í að lesa og skráðu sjálfir lesnar blaðsíður. �?á var jafnframt haldið utan um lesturinn eftir […]