Lestrarlandsleiknum Allirlesa.is lauk um miðnætti í gær, sunnudaginn 16. nóvember á degi íslenskrar tungu. Keppnin hefur staðið yfir óslitið frá 17. október og fór þannig fram að þátttakendur sem skráðu sig fyrir upphaf keppninnar stofnuðu lið og kepptu innbyrðis í að lesa og skráðu sjálfir lesnar blaðsíður. �?á var jafnframt haldið utan um lesturinn eftir búsetu. Skemmst er frá því að segja að Vestmannaeyja urðu hlutskarpastir þéttbýliskjarna, Hveragerði varð í öðru sæti og Sveitarfélagið �?lfuss hlaut þriðja sætið. Vestmannaeyjar eru því réttnefndur bókabær Íslands.
�?átttakendur skiptust í lið eftir því hvort um var að ræða vinnustað, skóla eða annað sem kallað var opinn flokkur. Eyjafréttir ræddu stuttlega við Kára Bjarnason, forstöðumann Safnahússins sem jafnframt er forstöðumaður bókasafnsins en lið hans, Vonarpeningur varð í öðru sæti í flokknum vinnustaður. �??Vonarpeningur er sá hrjáði fénaður sem látinn er út á Guð og gaddinn�??, sagði Kári. �??En gegn líkum uxum við fram en koðnuðum ekki niður.�??
Kári bætti því við að hann teldi að meginástæðan fyrir sigri Vestmanneyja í lestrarkeppninni hefði verið kapp Grunnskóla Vestmannaeyja. Á vegum Vestmannaeyjabæjar hefur verið unnið að því að móta stefnu um stóraukna áherslu á læsi og stærðfræði. �??Við eigum í samstarfi við Grunnskólann hér á bókasafninu og af þeim sökum þekki ég það mjög vel hversu myndarlega skólinn hefur brugðist við áskorun bæjaryfirvalda að því er tekur til átaks um læsi. �?á þekki ég einnig til að Ráðhúsið hér var með fjölmenna og þaullæsa sveit og því hafa margir komið að sigrinum enda þótt krafturinn í Grunnskólanum hafi skilað okkur lengst enda þótt Safnahúsið hafi e.t.v. náð bestu árangri einstakra sveita.�?? �?á bætti Kári við að lokum að sem forstöðumanni bókasafnsins hér þætti honum sérstaklega vænt um að sjá Vestmannaeyjar vinna lestrarkeppnina á landsvísu.