Fyrsti og eini fundur Kótilettuklúbbs Vestmannaeyja á árinu verður laugardaginn 22. nóvember, húsið opnað kl.19:00 og matur hefst kl. 20:00. Ræðst það af fjölda klúbbfélaga hvort fundurinn verður haldinn á Háaloftinu eða í stóra salnum í Höllinni. Aðaldagskráratriði fundarins er að borða og borða mikið. Fyrst eru það vel brasaðar kótilettur með kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og síðast en ekki síst rabarbarasultunni sem er ómissandi þegar kótilettur eru á borðum. Í eftirrétt er það svo Royalbúðingur.
�??Hugmyndin kviknaði á fundi í Oddfellow í fyrravetur þar sem boðið var upp á kótilettur með öllu,�?? segir Pétur Steingrímsson, stjórnarmaður og aðalhvatamaður að stofnun klúbbsins ásamt Gunnari Heiðari Gunnarssyni, matreiðslusnillingi hjá Einsa kalda. �??Gunnar sá um að elda fyrir okkur í Oddfellow og upp úr spjalli okkar á milli varð til þessi hugmynd , að stofna klúbb um þennan eðalmat sem kótilettur eru. Að borða kótilettur eins og þær voru hjá mömmu hér í denn, vel brasaðar með grænum baunum, rauðkáli og rabarbarasultu er draumur okkar allra og nú skal hann rætast. Í eftirrétt verður gamli góði Royalbúðingurinn með vanillu- karamellu- súkkulaði- og sítrónubragði. �?að mun enginn skammta á diskinn þinn á þessum fundi nema þú sjálfur og þú getur farið eins margar ferðir á hlaðborðið og þú vilt,�?? segir Pétur sem telur að um þjóðarvakningu sé að ræða.
Miðaverð er 4500 krónur og allur aðgangseyrir umfram kostnað rennur til góðgerðamála. �?? Enn og aftur vil ég minna konur og menn á að staðfesta komu sína á hátíðina með því að leggja inn á reikninginn okkar fyrir 17. nóvember nk. svo kokkurinn viti hvað hann fær marga í mat,�?? sagði Pétur að endingu.
Viðtalið í heild sinni við Pétur má lesa í Eyjafréttum.