Dagana 7 – 9 maí næstkomandi býður Einsi kaldi uppá ítalska töfra. Einar Björn Árnason og Sigurjón Aðalsteinsson hafa síðustu vikur skipulagt þessa hátíð og er dagskráin sem hér segir:
Dagskrá ítalskra daga í Vestmannaeyjum!
Fimmtudagur 7. maí
Halla Margrét Árnadóttir, óperusöngkona ásamt Svetlönu Makedon, píanóleikara munu halda óperutónleika til stuðnings Eyjarós krabbavörn í Vestmannaeyjum, í safnaðarheimili Landakirkju.
Efnisskrá tónleikana verður mjög fjölbreytt, en hún spannar frá íslenskum sönglögum til fjörugrar Napólí tónlistar.
Við hvetjum alla unnendur klassískrar tónlistar til að flykkja sér á tónleikana og styrkja í leiðinni gott málefni.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðaverð 2.500 kr
Miðasala fer fram í Eymundsson og við innganginn. Einnig er hægt að hringja í Karólínu í síma 661-2845 og panta miða.
Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Eyjarósar krabbavörn í Eyjum ![]()
Föstudagur 8. maí
Einsi kaldi í samstarfi við ítölsku meistarakokkana, Michele Mancini og Claudio Savini bjóða upp á ekta 7 rétta ítalska matarupplifun.
Þessi viðburður er eitthvað sem sannir sælkerar og áhugafólk um mat og matarmenningu mega ekki láta fram hjá sér fara.
Alberto di Cappa ferðamálafrömuður ásamt Höllu Margréti Árnadóttur óperusöngkonu munu kynna réttina fyrir matargestum, auk þess að veita fólki innsýn í matarvenjur Ítala.
Það eina sem Einsi telur að geti spillt gleðinni í eldhúsinu er að hann heldur með Inter Milan á meðan ítölsku meistarakokkarnir styðja Juventus, en hann stefnir á að halda friðinn a.m.k. fram yfir kvöldverðinn.
Þrátt fyrir að mateiðslumeistararnir noti trufflur og truffluafurðir (meðalverð á hvítri Alba vetrartrufflu er 1.500 dollarar fyrir 100 grömm eða rétt tæpar 200 þúsund krónur) í nokkra rétti þá ætlar Einsi að halda verðinu á matseðlinum í algjöru lágmarki, eða 8.900 kr fyrir manninnJ
Verð með 4 glösum af sérvöldum ítölskum vínum er 15.700 kr
Hægt er að tryggja sér borð á þessa einstöku upplifun með því að hringja í 481-1415, eða með því að senda okkur skilaboð á facebook síðu okkar Einsi Kaldi ![]()
Laugardagur 9. maí
Í Eldheimum munu Alberto di Cappa, ferðamálafrömuður og Halla Margrét Árnadóttir, óperusöngkona standa fyrir Ítalíukynningu.
Í viðleitni sinni til að koma boðskapnum á framfæri, þá ætla þau vinirnir að styðjast við myndbönd söng, skype og auðvitað eigin rödd.
Kynningin hefst kl. 18:00 og er aðgangur ókeypis.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.