�?rjár ungar og efnilegar skrifa undir

Í dag skrifuðu þær Díana Dögg Magnúsdóttir, Erla Rós Sigmarsdóttir og Sandra Dís Sigurðardóttir allar undir nýjan eins árs samning við ÍBV. Stelpurnar spiluðu allar á síðasta ári fyrir meistaraflokk ÍBV ásamt því að vera mikilvægur partur af unglingaflokki kvenna sem átti stórkostlegt tímabil og stóðu uppi sem bikar- og deildarmeistarar. Erla Rós er fædd […]

Hákon Daði með stórleik gegn Spánverjum

Opna Evrópska mótið í handknattleik fer nú fram um þessar mundir í Svíþjóð. �?etta er tíunda árið sem mótið er haldið en það fer fram á sama tíma og Partille Cup, sem er vinsælt handboltamót. Á þessu móti koma landslið unglinga undir 19 ára saman frá helstu þjóðum Evrópu. Fulltrúi ÍBV á mótinu er hinn […]

Goslokamerki til styrktar Gleðigjöfunum

Hófý framleiðir goslokamerki til styrktar Gleðigjöfunum, barmmerkið kom fyrst í sölu í fyrra og var þá til styrktar einhverfum börnum. Merkin eru til sölu í Gallery Tyrkja Guddu, Kirkjuvegi 12 eða gamla Prýði. Merkið er Eldfell unnið úr lambaskinni og hrosshárum kostar 2000 kr. Mjög nýtískuleg og falleg merki. (meira…)

ÍBV semur við Spánverja

Knattspyrnuráð karla ÍBV hefur gengið frá samningi við Jose Enrique Vegara Seoane og gildir samningurinn til loka tímabilsins. Leikmaðurinn er 26 ára og kemur frá Spáni en er að auki með Bandarískt vegabréf. Jose kom á reynslu til félagsins fyrr í sumar þar sem að hann stóð sig vel á æfingum en leikmaðurinn er sóknarmaður […]

Sjö tinda gangan 2015

7 tinda gangan verður LAUGARDAGINN 4. J�?LÍ KL. 11.30. Fyrirkomulagið er nýtt þetta árið og verður byrjað á Stórhöfða og endað uppi við Íþróttamiðstöð. Gönguleiðina má sjá á kortinu hér að neðan,merkt með rauðu, boðið verður upp á bátsferð frá Skansi og yfir á Gjábakkabryggju, við frystigeymslur VSV. Allir velkomnir, hver og einn fer í […]

Allt að verða klárt fyrir Sirkus Íslands

Sirkus Íslands hóf að setja upp sirkus tjaldið sitt, Jöklu á mánudaginn var og er nú allt að verða tilbúið á malarvellinum við Löngulág en fyrsta sýning er á morgun klukkan 17. Miðasalan við tjaldið hefur verið opnuð og verður opin frá 10-17 og fram að síðustu sýningu dagsins einnig er hægt að nálgast miða […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.