Allt að verða klárt fyrir Sirkus Íslands
Sirkus Íslands hóf að setja upp sirkus tjaldið sitt, Jöklu á mánudaginn var og er nú allt að verða tilbúið á malarvellinum við Löngulág en fyrsta sýning er á morgun klukkan 17. Miðasalan við tjaldið hefur verið opnuð og verður opin frá 10-17 og fram að síðustu sýningu dagsins einnig er hægt að nálgast miða inn á miði.is en enn eru til miðar á allar sýningar. Alls verða átta sirkus sýningar frá fimmtudegi til sunnudags.
Sirkusinn sýnir þrjár mismunandi sýningar hér í Vestmannaeyjum og þær eru; Fjölskyldusýninguna Heima er best, krakkasýninguna S.I.R.K.U.S. og fullorðinskabarettinn Skinnsemi sem er bönnuð innan 18 ára.
Meðfylgjandi eru myndir af tjaldinu sem Halldór B. Halldórsson tók og blaðamaður Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.