Hákon Daði með stórleik gegn Spánverjum
Opna Evrópska mótið í handknattleik fer nú fram um þessar mundir í Svíþjóð. �?etta er tíunda árið sem mótið er haldið en það fer fram á sama tíma og Partille Cup, sem er vinsælt handboltamót. Á þessu móti koma landslið unglinga undir 19 ára saman frá helstu þjóðum Evrópu.
Fulltrúi ÍBV á mótinu er hinn eldsnöggi Hákon Daði Styrmisson en hann er vinstri hornamaður. Tveir aðrið Eyjamenn hafa verið í og við hópinn en fóru ekki út í þetta skiptið, þeir eru Dagur Arnarsson og Nökkvi Dan Elliðason. Dagur sem hefur verið í hópnum gaf ekki kost á sér í verkefni sumarsins.
Íslenska liðið byrjaði mótið gríðarlega vel en það lenti í riðli með Portúgölum, Finnum og Georgíu.
Á mánudaginn spiluðu Íslendingar við Finna en þeim leik lauk með fjögurra marka sigri Íslands, Hákon Daði skoraði eitt mark í leiknum. Staðan var jöfn 13:13 í hálfleik.
Seinna um daginn kepptu þeir við Georgíu sem eru ekki með frambærilegt landslið. Íslenska liðið var einungis tveimur mörkum yfir í hálfleik en þeir kláruðu dæmið í seinni hálfleik. Leiknum lauk 19:32 en Hákon Daði skoraði 8 mörk í leiknum.
Í gær spilaði liðið við Portúgali um efsta sætið í riðlinum. Íslenska liðið spilaði nokkuð vel en Portúgalir voru þó tveimur mörkum yfir í hálfleik. Íslendingar voru fljótir að saxa á forskotið og sigu fram úr í lokin, eins marks sigur og toppsætið því staðreynd. Hákoni Daða tókst að skora þrjú mörk í leiknum.
Í dag var síðan fyrir fram erfiðasti leikur mótsins. Liðið spilaði við Spánverja sem eru með ógnarsterkt lið, eitt besta lið Evrópu um þessar mundir. Staðan í hálfleik var jöfn 15:15, en með frábærum seinni hálfleik tókst strákunum að landa eins marks sigri. �?eir eru því í frábærri stöðu fyrir restina af mótinu. Hákon Daði Styrmisson átti stórleik og skoraði fimm mörk, að hans sögn var þetta besti leikur hans á mótinu.
Mikil aðsókn er á leiki í mótinu en þeir fara fram í Valhalla, sem er stór höll staðsett í Gautaborg. 450 manns sáu Hákon Daða og félaga skella Spánverjum.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.