3. flokkur tekur á móti Fram

3. flokkur karla hjá ÍBV tekur á móti sterku liði Fram á morgun í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst stundvíslega klukkan 18:00. ÍBV situr í 6. sæti í B-deild 3. flokks en Framarar eru í þriðja sætinu. Fyrr á leiktíðinni áttust liðin við í �?lfarsárdal en þar sigruðu Framarar með átta […]

Hei­mótt­ar­legt að halda sig vita allt best á Íslandi

Sig­urður Áss Grét­ars­son, for­stöðumaður sigl­inga­sviðs Vega­gerðar­inn­ar, blæs á gagn­rýni Gunn­laugs Kristjáns­son­ar, for­stjóra Björg­un­ar, um að eng­inn geti upp­fyllt útboðsskil­yrði fyr­ir dýpk­un í Land­eyja­höfn. Sig­urður seg­ir að þeir þrír aðilar sem skiluðu inn til­boðum um dýpk­un í Land­eyja­höfn hafi gert svo án þess að setja fyr­ir­vara um verkið. �??�?etta eru verk­tak­ar sem eru með veltu upp […]

Sailesh til Vestmannaeyja

Sailesh elskar að dáleiða Íslendinga og hann er væntanlegur með sýningu í Kiwanishúsið í Vestmannaeyjum þiðjudaginn 15. september. Sailesh kom til Vestmannaeyja fyrir um 8 árum og fyllti þá húsið með ótrúlegri sýningu sem engin gleymir sem voru þar, nú heimsækir hann Eyjar aftur að eigin ósk en svo vel skemmti hann sér síðast þegar […]

Stelpurnar mæta KR í dag

Í dag klukkan 18:00 sækja Eyjastelpur KR-inga heim á Alvogenvöllinn. Liðin mættust í byrjun júní á Hásteinsvelli þar sem ÍBV hafði betur 6-0. ÍBV er í 5. sæti deildarinnar með 22 stig en KR er í því áttunda með sex stig. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.