Lundasumarið 2015

Lundaballið er um helgina og því rétt að fara yfir sumarið. Staðan núna, 24. sept. er ótrúleg. Mikill lundi við Eyjar og mikið af sílisfugli að bera í holur ennþá og flug lundapysjunnar rétt að ná hámarki og svolítið erfitt að átta sig á því, hvað gerðist í sumar, en þó. Ég var staddur austur á […]

Fanney í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld

Í sjónvarpsþættinum KVIKAN sem verður hleypt af stokkunum á Hringbraut í kvöld er sögð baráttusaga 59 ára gamallar konu úr Vestmannaeyjum. Hún heitir Fanney Björk Ásbjörnsdóttir og hefur verið í fréttum undanfarið vegna sögu sem vekur upp spurningar um réttlæti og jöfnuð innan íslenska heilbrigðiskerfisins segir í tilkynningu frá sjónvarpsstöðinni. �?átturinn verður sýndur klukkan 21:30 […]

�?jóðhátíðarfundur í kvöld – Gerum góða hátíð betri

ÍBV-íþróttafélag heldur �?jóðhátíðarfund í kvöld í fundarsalnum í Íþróttamiðstöðinni kl. 20:00. �?ar verður farið í það sem vel gekk og það sem betur má fara. �??�?etta er bara eins og við höfum gert undanfarin ár,�?? sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins. �??�?arna verður farið yfir síðustu hátíð og skoðað það sem má betur fara. Tilgangurinn […]

Lundaball 2015 – Afsökunarbeiðni Eyjafrétta

Eyjafréttir gerðu hroðaleg mistök vegna Lundaballsins 2016. Í viðtali við töframann Helliseyjar “The Great Macabra” var haft eftir honum að Lundaball 2016 yrði á vegum Suðureyjar. Hið rétta er að það er auðvitað Heimalandið sem sér um næsta Lundaball. Hin alvarlegu mistök Eyjafrétta voru að sjálfsögðu þau að gera töframann Helliseyjar að heimildarmanni sínum, vitandi […]

Hollenska dýpkunarskipið hefur ítrekað þurft frá að hverfa í Landeyjarhöfn

Stóra hollenska dýpkunarskipið sem kom nýverið til landsins til að dýpka innsiglinguna til Landeyjahafnar hefur ítrekað orðið frá að hverfa vegna ölduhæðar. �?að virðist ekki getað athafnað sig í umtalsvert meiri ölduhæð en litlu skipin sem notuð hafa verið til þessa. �?á er það svo langt, eða 90 metrar, að það getur ekki athafnað sig […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.