Góður útisigur á Víkingum

ÍBV sigraði Víking, 26-22 í Olís deild karla í kvöld þegar áttunda umferð deildarinnar fór fram. Fyrir leikinn gerði ÍBV athugasemd við gólfið í Víkinni en þeir töldu það vera of sleipt sérstaklega í öðrum teignum, sú kenning Eyjamanna reyndist vera sönn því strax á annarri mínútu leiksins meiddist Stephen Nielsen markmaður ÍBV og stuttu […]

Herjólfur til �?orlákshafnar á morgun, þriðjudag

Í ljósi fyrirliggjandi ölduspár fyrir þriðjudaginn þá hefur verið tekin sú ákvörðun að sigla til �?orlákshafnar á morgun. Herjólfur siglir tvær ferðir til �?orlákshafnar 13.10.15 Brottför frá Vestmannaeyjum 08:30 og 15:30 Brottför frá �?orlákshöfn 11:45 og 19:15 Búið er að opna fyrir bókanir í klefa og kojur. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum […]

Rúm millj­ón safn­ast fyr­ir dæt­urn­ar

Rúm­lega millj­ón krón­ur hafa safn­ast inn á reikn­ing til styrkt­ar dætr­um �?or­steins Elías­ar �?or­steins­son­ar, sem lést 37 ára að aldri í júní síðastliðnum. Börn sem �?or­steinn þjálfaði í 3. flokki Fylk­is blésu til 12 tíma knatt­spyrnu í gær til að safna áheit­um til styrkt­ar dætr­um hans, sem eru fimm og níu ára gaml­ar. Alls hafa […]

Stormsvölu ungar seinna á ferðinni

Eins og ungar lundans, fýlsins, skrofunnar og sjósvölunnar þá fljúga ungar stormsvölunnar stundum að ljósunum í bænum. �?eir eru seinna á ferðinni en fyrrnefndir ungar og kom fyrsti stormsvöluungi haustsins í Sæheima í dag. Nokkuð stór sjósvölubyggð er í Elliðaey og má telja líklegt að unginn hafi flogið þaðan. �?etta eru ekki einungis síðbúnustu ungarnir […]

Ern­ir fá fjórðu flug­vél­ina í flot­ann

Fjórða skrúfuþotan í flota Flug­fé­lags­ins Ern­is bæt­ist við síðar í mánuðinum. Mik­il fjölg­un farþega til og frá Húsa­vík og Vest­manna­eyj­um, þangað sem fé­lagið er með dag­leg­ar ferðir, ræður þessu og hafa flug­véla­kaup­in verið í deiglu um nokk­urt skeið. Vél­in nýja er sömu gerðar og þær þrjár sem Ern­ir eiga fyr­ir, það er Jet Stream 32 […]

ÍBV sækir Víking heim

Í dag klukkan 18:00 taka Víkingar á móti ÍBV í Víkinni þegar áttunda umferð Olís deildar karla fer fram. Víkingar eru nýliðar í deildinni og sitja á botni hennar ásamt hinum nýliðunum, Gróttu en bæði lið eru með tvö stig. ÍBV hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og hafa unnið fimm leiki í röð, strákarnir […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.