Rúm millj­ón safn­ast fyr­ir dæt­urn­ar
Rúm­lega millj­ón krón­ur hafa safn­ast inn á reikn­ing til styrkt­ar dætr­um �?or­steins Elías­ar �?or­steins­son­ar, sem lést 37 ára að aldri í júní síðastliðnum. Börn sem �?or­steinn þjálfaði í 3. flokki Fylk­is blésu til 12 tíma knatt­spyrnu í gær til að safna áheit­um til styrkt­ar dætr­um hans, sem eru fimm og níu ára gaml­ar.
Alls hafa safn­ast 1.052.000 krón­ur sam­kvæmt Árna Jóns­syni fram­kvæmda­stjóra Fylk­is.
Fram hef­ur komið að stefn­an var sett á að safna hálfri millj­ón króna. �??Hvort við náum ein­hverju meira, það verður bara að koma í ljós,�?? sagði Birna Krist­ín Ei­ríks­dótt­ir knatt­spyrnuiðkandi í 3. flokki í sam­tali við mbl.is í gær.
Jón Stein­dór �?or­steins­son þjálf­ari 3. flokks seg­ir knatt­spyrn­una hafa gengið vel fyr­ir sig. �??Dag­ur­inn í heild sinni var bara frá­bær. En það voru ansi marg­ir orðnir vel þreytt­ir und­ir lok­in,�?? seg­ir Jón.
Hjart­næm stund
�??Meiri­hluti krakk­anna var all­an tím­ann og það er nátt­úru­lega ótrú­legt af­rek út af fyr­ir sig. �?að er erfitt að hlaupa og elta bolta stans­laust í tólf klukku­tíma, þó að við höf­um aðeins reynt að dreifa álag­inu.�??
Hann seg­ir það hafa verið fal­legt augna­blik þegar fjöl­skylda og vin­ir �?or­steins komu í Fylk­is­höll­ina til að þakka fyr­ir fram­takið. �??�?að var mjög hjart­næm stund og marg­ir áttu erfitt með að halda aft­ur af tár­un­um.�??
Í heild­ina komu tæp­lega 70 krakk­ar úr 3. flokki að knatt­spyrn­unni í gær.
�??Fyr­ir utan það komu krakk­ar úr 2. flokki, 4. flokki og allt niður í 6. flokk og fengu að leggja sitt af mörk­um. Heild­ar­fjöldi krakk­anna hef­ur því verið í kring­um hundrað. �?etta tókst virki­lega vel í alla staði og krakk­arn­ir eiga mikið hrós skilið fyr­ir frá­bært fram­lag og bara flott hjarta­lag í raun­inni.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.