Áskorun á rekstraraðila Herjólfs

Það hafa óvenju margir komið á máli við mig að undanförnu og kvartað sáran yfir fargjöldum með Herjólfi. Þetta hefur lengi verið mál sem hefur verið á milli tannanna á Eyjamönnum og það er ósköp skiljanlegt, vegna þess að fargjöldin eru allt of há og í engu samræmi við vegalengdina sem farin er.

Það ganga nú orðið sögur út um allan bæ að það sé bullandi hagnaður á rekstri Herjólfs og að greiðslurnar frá ríkinu, fari beint í vasa rekstraraðila. Ekki veit ég, hvort þetta er satt, en ég skora hér með á rekstraraðila Herjólfs að birta ársuppgjör nokkur ár aftur í tímann, og þá um leið hvort og þá hversu mikill hagnaður er af rekstrinum og um leið, hversu hátt hlutfall af hagnaðinum kemur frá ríkinu (ef það er hagnaður).

Miðað við fjölgun farþega og lækkun olíukostnaðar síðustu ár, þá hlýtur reksturinn að hafa lagast mikið síðustu ár, en samt hækkaði gjaldið með skipinu s.l. vetur.

Ég tel að almennt séu Eyjamenn á þeirri skoðun, að gjaldtaka á þessum þjóðvegi okkar eigi ekki að vera hærri en sem nemur kostnaði annara Íslendinga við að ferðast sambærilega vegalengd.

 

Með von um skjót svör.

Georg Eiður Arnarson

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.