Heim­ir bjarg­ar tönn Fylk­is­konu

Knatt­spyrnu­kon­an Rut Kristjáns­dótt­ir sem leik­ur með Fylki í Pepsi-deild kvenna lenti í miður skemmti­legu í Vest­manna­eyj­um í gær þegar hún missti tönn eft­ir samstuð í deild­ar­leikn­um gegn ÍBV. Hún skoraði mark Fylk­is sem tapaði 2-1 en þurfti að fara af velli þegar fimm mín­út­ur voru eft­ir af venju­leg­um leiktíma. Rut sett­ist í stól­inn hjá eng­um […]

Palli Magg býður sig fram í fyrsta sætið hjá Sjálfstæðismönnum

Eyjamaðurinn, Páll Magnús­son, fjölmiðlamaður og fyrr­ver­andi út­varps­stjóri, gefur kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi og stefn­ir hann á 1. sæti list­ans. �?etta staðfest­i hann í sam­tali við mbl.is en fram­boðsfrest­ur til að tilkynna þátttöku í prórkjöri flokksins, sem fram fer 10. september rennur út á miðnætti í kvöld. �??�?g hef ákveðið að gefa […]

Tilkynning um framboð í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi

Tilkynning um framboð í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi �?g, Brynjólfur Magnússon, hef ákveðið að gefa kost á mér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer þann 10. september næstkomandi. �?g er 28 ára, lögfræðingur að mennt og er fæddur og uppalinn í �?orlákshöfn. �?g hef sinnt hinum ýmsu störfum frá unga […]

Gunnar Karl Haraldsson tekur þátt í Reykjavíkur maraþoninu í ár

Gunnar Karl Haraldsson ætlar að taka þátt í Reykjavíkur maraþoninu í ár. En hann notast við hjólastól til að koma sér á milli staða. Á heimasíðu hlaupsins og jafnframt þar sem er hægt að skora á Gunnar Karl segir hann: �?g hef ákveðið að ýta mér í hjólastólnum 10 km til styrktar Reykjadals! Reykjadalur er […]

Unnur Brá sækist eftir öðru sætinu

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi prófkjöri. Unnur Brá hefur setið á Alþingi frá árinu 2009. �??Undanfarin sjö ár hef ég notið þess heiðurs að vera fulltrúi Suðurkjördæmis á Alþingi og sækist eftir að fá umboð frá flokkssystkinum mínum til þess að halda áfram því […]

Natasha kom ÍBV til bjarg­ar

�?að var mik­il drama­tík þegar ÍBV lagði Fylki að velli, 2:1, í 11. um­ferð Pepsi-deild­ar kvenna í knatt­spyrnu á Há­steinsvelli í Vest­manna­eyj­um í gærkvöldi. Sig­ríður Lára Garðars­dótt­ir kom ÍBV yfir strax á 4. mín­útu þegar hún skoraði úr víta­spyrnu eft­ir að brotið var á Cloe Lacasse inn­an víta­teigs. �?vert gegn gangi leiks­ins náðu Fylk­is­stelp­ur að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.