Ráðherraskipan Sjálfstæðisflokksins, lítilsvirðing fyrir Suðurkjördæmi eða mátti ekki búast við þessari niðurstöðu?

Nú liggur fyrir ráðherraskipan Sjálfstæðisflokksins við myndun ríkisstjórnar í kjölfar Alþingiskosninga. Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn sigur í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum til Alþingis og fékk 31.5% atkvæða í kjördæminu og 4 þingmenn kjörna.  

Það var aðeins í Suðvesturkjördæmi sem að Sjálfstæðisflokkurinn fékk hærra hlutfall atkvæða en í öðrum kjördæmum landsins fékk Sjálfstæðisflokkurinn lægra hlutfall og færri þingmenn kjörna.

Miðað við framangreint hefði því verið talið líklegt að Suðurkjördæmi fengi ráðherraembætti í sinn hlut en svo var ekki í þetta skiptið. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru 6 talsins og koma 2 þeirra úr Suðvesturkjördæmi, 2 úr Reykjavíkurkjördæmum, 1 úr Norðvestur og 1 úr Norðaustur.  Þá fékk 4 þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi embætti forseta Alþingis í sinn hlut.

Sagan

Á síðasta kjörtímabili var Ragnheiður Elín Árnadóttir 1. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.  Hún var ráðherra flokksins í ríkisstjórn frá 2013-2017.  Líklega er hægt að segja að hún hafi sótt sitt sterkast fylgi til Reykjaness. Sjálfstæðisflokkurinn var þar á undan í ríkisstjórn 2007-2009.  Þá var 1. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Árni M. Mathiesen. Hann var fjármálaráðherra.  Líklega sótti hann fylgi sitt jafnt yfir Suðurkjördæmi þrátt fyrir búsetu í Suðvesturkjördæmi.  

Á undan honum voru þau Árni Johnsen og Drífa Hjartardóttir um skamma hríð 1. þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.  Þar á undan var Þorsteinn Pálsson 1. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi um langa hríð og sótti líklega fylgi sitt jafnt yfir Suðurkjördæmi. Hann var ráðherra Sjálfstæðisflokksins um lengri tíma. 

 

Hafa ekki treyst sjálfstæðismanni úr Eyjum til ráðherraembætta

En var það eins sjálfsagt og margir halda að 1., já eða 2. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi yrðu nú ráðherrar.  Báðir þessir þingmenn, Páll Magnússon og Ásmundur Friðriksson sækja að talsverðu leyti fylgi sitt til Vestmannaeyja og  báðir eru þeir fæddir þar og uppaldir. En þrátt fyrir að Vestmannaeyjar hafi löngum verið talið sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þá sýnir sagan það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki treyst sjálfstæðismanni úr Vestmannaeyjum til ráðherraembætta. Í því sambandi er einfaldast að vísa til starfa Árna Johnsen og Guðjóns Hjörleifssonar sem þingmanna flokksins.  Þeir voru hins vegar ekki 1. þingmenn kjördæmisins nema Árni um mjög skamma hríð.  

Nú horfir öðruvísi við eins og hér að framan er getið.  Engu að síður þá virðist einfaldlega það sama uppá teningunum. Þingmanni Sjálfstæðisflokksins sem sækir að mestu fylgi sitt til Vestmannaeyja, er ekki treyst fyrir ráðherraembætti í ríkisstjórn, jafnvel þótt um 1. og 2. þingmann Sjálfstæðisflokksins sé að ræða. Spurningunni í fyrirsögn má því líklega svara á þann veg að niðurstaðan var gefin fyrirfram en ekki beri að líta á hana sem sérstaka niðurlægingu fyrir Suðurkjördæmi.

 

Sauðtrygga fylgið ekkert á förum

Þetta skiptir þó líklega engu máli fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  Hið sauðtrygga fylgi flokksins í Vestmannaeyjum er ekkert á förum.  Engu skiptir þar þótt Eyjamönnum sé ítrekað  fyrir litlu treyst. Kannski felast skilaboð í niðurstöðunni.   En ef svo er þá skiptir það heldur engu máli. Við Eyjamenn, munum samt mæta og klappa sem endranær.  Það breytist ekkert enda en gengið út frá því.

 

P.s. Greinaskrifari er fæddur á seinni hluta síðustu aldar og vann heimildavinnu greinilega ekki nógu vel en var bent á það að Jóhann Þ. Jósefsson f. 1886 og einn af stofnendum Íhaldsflokksins 1924 og Sjálfstæðisflokksins 1929 var fjármála- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-49 og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Ólafs Thors 1950.  Jóhann var borinn og barnfæddur Eyjamaður, þannig að fordæmi er fyrir því að þingmanni úr Vestmannaeyjum sé treyst til ráðherraembættis innan Sjálfstæðisflokksins.  Frekari ábendingar eru vel þegnar.

 

Tryggvi Már Sæmundsson

Jóhann Þ. Jósefsson

Nýjustu fréttir

Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow
Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.