Jón eða séra Jón

Það fer ekki framhjá neinum að hamfarir ganga nú yfir Austurland og er hægt að taka undir að þarna verði ríkið að grípa inní sem fyrst. Tveir ráðherr­ar eru nú þegar mætt­ir á svæðið, þeir Bjarni Benediktsson og Jón Gunnarsson, auk fylgd­arliðs. 

Þeir lentu á flug­vell­in­um á Hornafirði um klukk­an tíu í morgun. Óhætt er að hrósa þeim fyrir það enda íbúar þarna búnir að vera sambandslausir síðan í gær. „Lífæðarn­ar þurfa að vera í lagi,“ seg­ir Jón Gunn­ars­son sam­gönguráðherra í sam­tali við mbl.is. 

Í þessu samhengi er nauðsynlegt að benda á að Vestmannaeyjar voru sambandslausar í tæpa þrjá sólarhringa nokkrum dögum fyrr. Nú er hvíslað um það að ekki nokkur bæjarbúi hafi orðið var við að ráðherrarnir hafi verið hér að kanna aðstæður. Vissulega voru þetta hamfarir hér líka. Munurinn er sá að hamfarirnar hér voru af mannavöldum!

Já, það er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón!

Nýjustu fréttir

Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.