Fundar bæjarstjórn um borð?

Þegar Landeyjahöfn opnaði árið 2010 fundaði bæjarstjórn Vestmannaeyja um borð í Herjólfi, í fyrstu ferðinni. Nú styttist í að ný ferja komi til landsins og eðlilega hvísla bæjarbúar því sín á milli hvort ný bæjarstjórn fylgi ekki fordæmi forvera sinna og haldi aukafund um borð í nýrri ferju í fyrstu ferð.

Ekki má þó búast við að fyrsta ferðin verði einhver skemmtiferð, því búast má við að hún verði farin uppí Þorlákshöfn, þar sem búist er við komu skipsins til landsins um hávetur. Ljósi punkturinn við það er að bæjarstjórn getur þá fundað í nokkra klukkutíma og rætt til að mynda samgöngumálin.

En það merkilega í þessu öllu er að Elliði Vignisson, nýráðinn bæjarstjóri í Ölfusi mun sennilega standa á kæjanum og taka á móti spottanum og aðstoða bæjarfulltrúa frá borði. Elliði var einmitt bæjarstjóri í Vestmannaeyjum þegar fundað var síðast um borð í Herjólfi.

Hér að neðan má sjá mynd Eyjar.net frá fundi bæjarstjórnar um borð í Herjólfi, frá árinu 2010. Gunnlaugur Grettisson, þáverandi forseti bæjarstjórnar stendur í pontu. Gunnlaugur er nú rekstrarstjóri Herjólfs.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.