Fjölmenni á Kjarvalssýningu

Fjölmennt var við opnun sýningar Vestmannaeyjabæjar á verkum Kjarval sem eru í eigu sveitarfélagsins. Sýningin sem aðeins var opin á nýársdag er liður í 100 ára kaupstaðarafmæli Vestmannaeyjabæjar.

En í gær voru 100 ár síðan Vestmannaeyjabær öðlaðist kaupstaðarréttindi. Allt þetta ár verða viðburðir á vegum bæjarins í tilefni af afmælinu. Ljósmyndari Eyjar.net leit við í Einarsstofu í gær við opnun sýningarinnar, en þar var kynnt nýtt merki í tilefni af afmælinu. Það var Ástþór Hafdísarson sem afhjúpaði merkið. 

Að sögn Kára Bjarnasonar, forstöðumanns Safnahússins komu hundruðir manna til að sjá sýninguna á þessum fjórum klukkutímum sem að hún var opin. „Það var stöðugur straumur fólks allan daginn” sagði Kári í samtali við Eyjar.net.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.