Framundan í febrúar

Afmælisdagskrá Vestmannaeyjabæjar heldur áfram í febrúar. Þá eru fyrirhugaðir þó nokkrir viðburðir. Fyrsti viðburður mánaðarins verður fimmtudaginn 7. febrúar.

7. febrúar 2019 
Útgáfudagur Íslandspósts á frímerki í tilefni 100 ára afmælisins. Dagskrá kl. 17.30 í Safnahúsinu þar sem hönnuður frímerkisins kynnir það. Auk þess verða sýnd og fjallað um frímerki frá 1950 og síðar sem tengjast Vestmannaeyjum. Jafnframt verður kynnt sérstök afmælisútgáfa af merki Vestmannaeyja-bæjar. Sýningin mun standa yfir til og með 10. febrúar 2019. 

12.-19. febrúar 2019 
Sýning á myndlist nemenda við Grunnskóla Vestmannaeyja úr sögu Vestmannaeyja. Sýningin verður í Safnahúsinu á opnunartíma hússins. 

14. febrúar 2019 
Opinn hátíðarfundur í bæjarstjórn kl. 18:00. Fundurinn fer fram í aðalsal Kviku. Hátíðarsamþykktir. Boðið verður upp á kaffiveitingar að loknum fundi. Annáll og liðlega 100 ljósmyndir tengdar atburðum úr 100 ára sögu bæjarfélagsins og atburðum sem tengjast þróun byggðar í Eyjum sýndar á breiðtjaldi. 

15. febrúar 2019 
Bæjarstjórnarfundur unga fólksins. Í samstarfi við Grunnskóla Vestmannaeyja munu nemendur í 9. og 10. bekkjum skólans efna til bæjarstjórnarfundar í aðalsal Kviku. Skipulag fundarins verður með sama hætti og hefðbundinn bæjarstjórnarfundur, en unga fólkið mun leggja fram tillögur, bókanir eða áskoranir til bæjarstjórnar. Gert er ráð fyrir að fundurinn fari fram milli kl. 12:00 og 13:30. Boðið upp á veitingar að loknum fundi. 

17. febrúar 2019 
Opið málþing um Vestmannaeyjar í 100 ár. Tækifæri og ógnanir. Fengnir verða fyrirlesarar úr röðum fræðimanna, frumkvöðla, sérfræðinga eða sérstakra áhugamanna um fortíð, nútíð og framtíð Vestmannaeyja og samfélagsmála í víðara samhengi. 

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.