Kristinn Ástgeirsson frá Miðhúsum

Í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar er efnt til 10 sýninga á jafnmörgum Eyjamönnum og – konum á árinu. Með sýningaröðinni er ætlunin að draga fram þá fjölbreyttu flóru sem vestmannaeyskir listavinir eru.

Öll eiga verkin það sameiginlegt að vera í eigu Listasafns Vestmannaeyja sem geymir um 700 listaverk. Fyrsti listamaðurinn í sýningaröðinni er Kristinn Ástgeirsson frá Miðhúsum (1894-1981) en margar mynda hans eru ómetanlegar heimildir um atvinnuhætti og verklag í Vestmannaeyjum fyrri tíðar.

Kristinn er flokkaður sem „naivisti“ en helstu einkenni þeirrar stefnu er einfaldleiki í litum og dráttum. Aðalsteinn Ingólfsson hefur gert grein fyrir list Kristins í bók sinni Naive and Fantastic Art in Iceland.

Sýningin opnar miðvikudaginn 30. janúar kl. 17:00 og verða ættingjar viðstaddir opnunina. Allir hjartanlega velkomnir á forvitnilega sýningu einstaks listamanns. Sýningin stendur til 5. febrúar.

Nýjustu fréttir

Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.