Frímerkja- og póstsaga Vestmannaeyja í 100 ár

Hinn 7. febrúar gefur Íslandspóstur út sérstakt frímerki til minningar um 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar. Af því tilefni er þann dag opnuð sýning þar sem hönnuður frímerkisins, Hlynur Ólafsson, afhjúpar og kynnir frímerkið. 

Einnig verður sýnt úrval þeirra frímerkja sem eru í eigu bæjarins sem og kynntir þeir Vestmannaeyingar sem hafa hannað frímerki til útgáfu.

Grunnur sýningarinnar er frímerkjasafn Guðmundar Ingimundarsonar, sem hann og kona hans, Jóhanna M. Guðjónsdóttir frá Hlíðardal,  færðu bænum að gjöf í júlí 1991.

Jafnframt eru sýnd ljósrit úr safni Indriða Pálssonar, þar á meðal elstu þekktu stimplun á frímerki í Vestmannaeyjum. Um er að ræða skildingamerki frá 1873-1876.         

Fimmtudaginn 14. febrúar, en þann dag eru rétt 100 ár liðin frá því fyrsti bæjarstjórnarfundur var haldinn í Vestmannaeyjum, verður hægt að fá umslög stimpluð með dagsstimpli Íslandspósts og hliðarstimpli, til að minnast þessara merku tímamóta í sögu bæjarins okkar.

Áréttað er að hliðarstimpillinn verður aðeins notaður þennan eina dag, en eyðilagður í dagslok. Hægt er að panta FDC (fyrstadagsumslög) Vestmannaeyjamerkisins frá frímerkjasölu Íslandspósts.

Nýjustu fréttir

ÍBV þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Val
Gönguleið austur á nýja hrauni
Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið
Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum
Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita
Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027
Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.