Nýtt frímerki Íslandspósts afhjúpað í Einarsstofu í dag

Í dag gefur Íslandspóstur út sérstakt frímerki til minningar um 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar. Af því tilefni verður opnuð sýning þar sem hönnuður frímerkisins, Hlynur Ólafsson, afhjúpar og kynnir frímerkið. 

Einnig verður sýnt úrval þeirra frímerkja sem eru í eigu bæjarins sem og kynntir þeir Vestmannaeyingar sem hafa hannað frímerki til útgáfu. 

Grunnur sýningarinnar er frímerkjasafn Guðmundar Ingimundarsonar, sem hann og kona hans, Jóhanna M. Guðjónsdóttir frá Hlíðardal,  færðu bænum að gjöf í júlí 1991.

Jafnframt eru sýnd ljósrit úr safni Indriða Pálssonar, þar á meðal elstu þekktu stimplun á frímerki í Vestmannaeyjum. Um er að ræða skildingamerki frá 1873-1876. 

Dagskráin hefst kl. 17.30 í Safnahúsinu. Sýningin mun standa yfir til og með 10. febrúar 2019.    

 

Nýjustu fréttir

Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.