Gleðilegt sumar

Lundinn settist upp 14. apríl í ár og þar með komið sumar hjá mér þó að veðrið sé nú ekki beint sumarlegt. Þetta er reyndar í fyrra lagi miðað við síðustu ár, en ég hef a.m.k. einu sinni séð hann setjast upp þann 13. en vonandi er þetta ávísun á gott sumar og eins og við heyrðum nýlega norður úr Grímsey, þá er lundinn líka farinn að koma fyrr þar ásamt því að þar er stöðug fjölgun á undanförnum árum og ef mið er tekið af pysjufjöldanum síðustu 4 árin, þá er stofninn greinilega á uppleið hérna líka. 

Líka ákveðin tímamót hjá mér, en í ár telst mér að það séu amk. 10 ár síðan ég veiddi síðast lunda í Vestmannaeyjum en hef nú verið svo heppinn að fá að veiða í soðið norður í landi þessi síðustu ár, en allt er þetta svo sem bara jákvætt og gott en það eru líka til neikvæðar hliðar sem mig langar aðeins að koma inn á, en í byrjun nóvember sl. kom ungur náttúrufræðingur í viðtal á RÚV þar sem rætt var um annars vegar slæma stöðu landselsins og svo hins vegar lundans.

Í sjálfu sér er ekkert nýtt að náttúrufræðingar sem eru að reyna að skapa sér atvinnutekjur við að rannsaka máli útlitið svolítið dökkum litum, en ég var svolítið sleginn þegar þessi manneskja fullyrti það að lundastofninn á Íslandi væri kominn niður í 2 milljónir para. Nú hef ég heimsótt margar eyjar í kring um landið ásamt því að fylgjast með lundanum hér í Eyjum frá því að ég man eftir mér. Mitt mat er að lundastofninn á Íslandi sé einhverstaðar á milli 20-30 milljónir og það sennilega frekar nær hærri tölunni.

Í sjálfu sér skipti fréttin ekki miklu máli, nema ef vera skyldi sú staðreynd að í framhaldinu tók fréttamaðurinn viðtal við núverandi umhverfisráðherra, sem strax var á því að þarna þyrfti nú að grípa inn í en þetta er sami ráðherrann og gaf það út síðla síðasta sumars að hvalveiðar á Íslandi væru ekki sjálfbærar, sem aftur varð til þess að Hafró varð að senda frá sér fréttatilkynningu og leiðrétta ráðherrann.

Það er alltaf vont þegar öfgasinnar ráða málum.

Sú breyting varð á Náttúrufræðistofu Suðurlands í vetur að Erpur er þar tekinn við og að sjálfsögðu óska ég honum til hamingju með það, en ég lagði einmitt áherslu á það þegar fyrri stjórn Náttúrufræðistofu Suðurlands var lögð niður, sem ég starfaði í á síðasta kjörtímabili, að allt yrði gert til þess að reyna að tryggja þessi prófessors stöðugildi hér í Eyjum, en ég sé svolítið eftir Ingvari Atla Sigurðssyni sem starfaði þarna.

Það vakti athygli í byrjun desember þegar Pétur Steingrímsson, lögreglumaður og fjallageit með meiru, setti fyrirspurn á fésbókina hjá sér og beindi fyrirspurninni beint til Erps, en fyrirspurnin var þannig nokkurn veginn: 

Hvernig er þetta með fýlinn. Fer hann á veturna eða hvað?

Erpur svaraði nú strax að það væri rétt, fýllinn færi yfir hörðustu vetrarmánuðina, en þetta er að sjálfsögðu rangt hjá Erpi. Eins og allir vita sem fylgjast með fýlnum, þá hverfur hann frá þegar frystir en kemur aftur um leið og það hlýnar og einmitt daginn eftir að Erpur svaraði þessu, þá fylltust öll fjöllin af fýl. Gaman væri nú að heyra frá Erpi um þetta, ég ætla því að beins þessari spurning til hans, honum er velkomið að svara því en hann má líka sleppa því ef hann vill.

Hvernig er þetta með fýlinn Erpur, fer hann yfir vetrarmánuðina eða hvað?

Gleðilegt lunda sumar allir.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.