Viðbótarmiðar á seinni tónleikana

Áhugi á stórtónleikunum í boði Vestmannaeyjabæjar á föstudagskvöldið hefur farið fram úr björtustu vonum. Sérstaklega á tónleikana kl. 21.00 og er svo komið að allir miðar sem farnir voru í dreifingu eru búnir þrátt fyrir að bætt hafi verið við miðum. 

Vegna ásóknar hefur afmælisnefndin ákveðið að setja alla miðana á seinni tónleikana í dreifingu. Hægt verður að nálgast miða í Íþróttamiðstöðinni frá kl. 17.00 á morgun, miðvikudag. Engir miðar verða því í boði við dyrnar á seinni tónleikana á tónleikadegi eins og áður var búið að tilkynna.

Meira er eftir af miðum á fyrri tónleikana kl. 18.00 , en vakin er athygli á að um er að ræða sömu dagskrá. Það ætti því ekki að skipta máli á hvora tónleikana er farið. Stemningin verður frábær á báðum tónleikunum. Miðar á fyrri tónleikana fást afhentir í Íþróttamiðstöðinni, Eldheimum og Safnahúsi. Er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst.

Vestmannaeyjabær býður á tónleikana –  enginn aðgangseyrir

 

 

 

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.