Laufey kynnir bókina sína í Sagnheimum

Milli klukkan 15:00 og 16:00 í dag, laugardag kynnir Laufey Jörgensdóttir bók sína, Undurfagra ævintýr, þjóðhátíðarlög Vestmannaeyja 1933-2019 í þjóðhátíðartjaldinu í Sagnheimum. 

Það eru Sögur útgáfa sem gefa bókina út og mun fulltrúi frá þeim vera með Laufeyju á staðnum og bjóða þau upp á þjóðhátíðarstemningu og léttar veitingar. Bókin kemur út fyrir næstu Þjóðhátíð.

Dýrmæt menningarverðmæti

„Tæp níutíu ár eru liðin frá útgáfu fyrsta þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja og síðan þá hafa fjölmargar tónlistarperlurnar verið þræddar á festi langrar sögu Þjóðhátíðar. Alls eru þjóðhátíðarlögin orðin sjötíu og sjö talsins og liggja þar dýrmæt menningarverðmæti sem mikilvægt er að skrá og varðveita á einum stað,“ segir í frétt frá útgáfunni.

Enn hægt að gerast hollvinur

Á síðasta ári var ákveðið að ráðast í útgáfu bókar um þennan þjóðararf og mun hún koma út í sumar í tilefni hundrað fjörutíu og fimm ára afmælis Þjóðhátíðar og hundrað ára kaupstaðarafmælis Vestmannaeyjabæjar.

Undurfagra ævintýr mun geyma nafnaskrá hollvina bókarinnar og gefst öllum Vestmannaeyingum og öðrum unnendum Þjóðhátíðar og tónlistar hennar að gerast hollvinir og eignast bókina í leiðinni.

 

Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.