Jóna Heiða sýnir í Einarsstofu

„Ljósmyndun er eitt af því sem ég nota í myndlistinni. Ég er að skrá það sem ég er að skoða og rannsaka úti í náttúrunni. Flóruna okkar, dýralífið og svo alla þessa heillandi náttúru sem umlykur okkur hér í Vestmannaeyjum,“ segir Jóna Heiða Sigurlásdóttir, myndlistarkona og kennari sem sýnir ljósmyndir sínar í Einarsstofu klukkan 13.00 á laugardaginn.

Þetta er sjöunda sýningin í sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Um síðustu helgi leyfðu Pétur Steingrímsson og Guðmundur Gíslason gestum að kíkja í ljósmyndasafnið sitt í Einarsstofu. Tónninn var sá sami, Vestmannaeyjar og nú tekur Jóna Heiða við kyndlinum en hennar nálgun er önnur.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á vísindum og náttúrufræði og stefndi á nám í líffræðigreinum en fór svo í allt aðra átt,“ segir Jóna Heiða. „En það vísindalega er aldrei langt undan og er rauði þráðurinn í því sem ég er að gera. Annað hvort skáldað eða það sem er til í raunveruleikanum. Ég lærði filmuframköllun í Listaháskólanum sem hluta af náminu. Fyrstu myndirnar tók ég þegar ég fékk myndavél frá pabba og mömmu árið 2001. Það eru því 18 ár síðan ég byrjaði á þessu og nú safna ég myndavélum og tek myndir.“

Bæjarlistamaður 2010

Jóna Heiða var eitt ár í Myndlistarskóla Reykjavíkur í fornámi áður en hún hóf nám við Listaháskólann árið 2002.  Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist 2005 og stundaði í kjölfarið nám við Universität der Künste í Berlín og tók síðar masterinn í listkennslu. Jóna Heiða var útnefnd Bæjarlistamaður Vestmannaeyja fyrir árið 2010. Sama ár var hún með sína fyrstu einkasýningu á Höfuðborgarsvæðinu þar sem hún sýndi myndverk og KÍMERA creation skartgripi sem hún hannar.

 „Auk þess að vinna í myndlistinni hef ég verið að kenna. Mest leikskólabörnum en nú er ég að kenna listgreinar í Framhaldsskólanum.“

Jóna Heiða ætlar að sýna sitt lítið af hverju af því sem hún hefur verið að gera. „Þetta eru myndir af því sem ég hef rambað á og vekur athygli mína. Þetta eru venjulegir hlutir sem maður leikur sér með að sjálfsögðu.“

Það verður fróðlegt og skemmtilegt að kíkja við í Einarsstofu á laugardaginn klukkan 13.00 og sjá það sem Jóna Heiða og Friðrik Björgvinsson ætla að bera á borð fyrir okkur.

Nýjustu fréttir

Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum
Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita
Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027
Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði
Kjötsúpa, söngur og góður félagsskapur
ÍBV fagnaði tveggja marka sigri gegn Selfossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.