Sjómannahelgin í máli og myndum

Sjómannahelgin var öll hin glæsilegasta um liðna helgi. Dagskráin hófst á fimmtudaginn síðasta og kláraðist á sunnudaginn. Margt var um manninn og var veðrið gott alla helgina. Óskar Pétur Friðriksson var á myndavélinni alla helgina og myndaði fyrir Eyjafréttir. Á fimmtudeginum fór sjómannabjórinn á The Brothers Brewery í sölu en bjórinn í ár var til […]
Samviskugarður fyrir meiri lífsgæði

Flugviskubit, akstursviskubit og annað samviskubit gerir vart við sig hjá mér eins og fleirum þegar rætt er um hlýnun jarðar og kolefnisjöfnun. Mér finnst umræðan þörf og góð vill endilega taka þátt í verndun umhverfisins og jafna út þau kolefnisspor sem ég skil eftir mig. Ég vil gjarnan gróðursetja trjáplöntur og jafna út á næstu […]
Hilmarslaut var vígð í gær

Í gær var Hilmarslaut við Hraunbúðir vígð í frábæru veðri og félagsskap í gær. Kvenfélagið Líkn lét búa til garðinn en félagið erfði fé eftir Hilmar Sigurðsson sem var heimilismaður á Hraunbúðum seinustu æviárin og létu Líknarkonur það fé renna til gerðar á pallinum við Hraunbúðir sem nefndur var Hilmarslaut. (meira…)
Forseti Þýskalands heimsækir Vestmannaeyjar

Forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, og Elke Büdenbender forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í næstu viku ásamt fylgdarliði. Gert er ráð fyrir að þau dvelji hér dagana 12. og 13. júní en haldi af landi brott föstudaginn 14. júní. Heimsóknin hefst með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum og mun Vestmannaeyjar verða þeirra síðasti viðkomustaður. Eftir móttöku […]
Ný stjórn ÍBV hefur verið skipuð

Aðalfundur ÍBV íþróttafélags var haldinn þann 4. júní. Formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóri félagsins fór yfir ársreikning vegna ársins 2018 og yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Miklar umræður voru um ársreikning félagsins. Breytingar urðu í stjórn félagsins þar sem Unnar Hólm Ólafsson formaður, Unnur Sigmarsdóttir, Helgi Níelsson og Páll Magnússon gáfu ekki […]
Aldamótatónleikarnir á Þjóðhátíð

Aldamótatónleikarnir hafa heldur betur slegið í gegn, uppselt á ferna tónleika og þeir fimmtu langt komnir í miðasölu sömuleiðis – og nú er búið að bóka þessa mögnuðu nostalgíu tónleika á stærsta svið landsins á Þjóðhátíð í Eyjum. Landslið sveitaballsins kemur fram en það skipa: Magni, Hreimur, Gunni Óla og Einar Ágúst, Beggi í Sóldögg […]