Aldamótatónleikarnir á Þjóðhátíð
Aldamótatónleikarnir hafa heldur betur slegið í gegn, uppselt á ferna tónleika og þeir fimmtu langt komnir í miðasölu sömuleiðis – og nú er búið að bóka þessa mögnuðu nostalgíu tónleika á stærsta svið landsins á Þjóðhátíð í Eyjum. Landslið sveitaballsins kemur fram en það skipa: Magni, Hreimur, Gunni Óla og Einar Ágúst, Beggi í Sóldögg og Valur í Buttercup, hljómsveit stjórnar að sjálfsögðu Vignir Snær úr Írafári. 
 
Einnig er í dag staðfest að Svala Björgvins kemur fram á Þjóðhátíð í fyrsta skipti en hún er ein af söngvurunum sem sjá um sunnudagskvöldvökuna, hina fullkomnu upphitun fyrir brekkusöng og blys – einnig kemur Egill Ólafs fram en fleiri söngvarar verða svo staðfestir á næstu vikum. 
 
Dagskrá Þjóðhátíðar 2019:
Herra Hnetusmjör, Huginn, GDRN, Flóni, ClubDub, Friðrik Dór, JóiPéxKróli, SZK, Lukku Láki, GRL PWR, Bjartmar Guðlaugs og ÁMS.
 
Þjóðhátíð fer fram 1.-3.ágúst / miðasala í fullum gangi á: https://dalurinn.is/
Það eru Tuborg & Pepsi Max sem færa þér Þjóðhátíð í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.