Forseti Þýskalands heimsækir Vestmannaeyjar

Forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, og Elke Büdenbender forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í næstu viku ásamt fylgdarliði. Gert er ráð fyrir að þau dvelji hér dagana 12. og 13. júní en haldi af landi brott föstudaginn 14. júní. Heimsóknin hefst með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum og mun Vestmannaeyjar verða þeirra síðasti viðkomustaður.

Eftir móttöku á Bessastöðum fara þau í hádegisverð í Marshallhúsinu í boði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, heimsókn í Alþingi og fundur með forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. Síðdegis opnar forseti Þýskalands formlega sýningu í Árbæjarsafni til minningar um Þjóðverja sem fluttu búferlum til Íslands á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. Eliza Reid forsetafrú og Elke Büdenbender forsetafrú Þýskalands munu heimsækja samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð fyrir hádegi og stoðtækjafyrirtækið Össur eftir hádegið. Loks bjóða forseti Íslands og forsetafrú til stuttra tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara í Eldborg og síðan hátíðarkvöldverðar á Kolabrautinni miðvikudaginn 12. júní. Fimmtudaginn 13. júní halda gestirnir í Hellisheiðarvirkjun og fræðast um jarðhitanýtingu auk þess sem þau skoða eldgosasýninguna á Hvolsvelli. Þaðan er farið að rótum Sólheimajökuls í fylgd skólanema úr Hvolsskóla þar sem sjá má glöggt dæmi um hversu hratt jöklar landsins hafa hopað síðustu áratugina. Þaðan verður haldið að Landeyjahöfn og siglt til Vestmannaeyja þar sem forsetahjónin heimsækja nokkra staði, þar á meðal Eldheima, fiskiskip og nýja hitaveitu, sem opnuð var formlega í bænum fyrir skömmu, auk þess sem þau ganga með fylgdarliði sínu á Eldfell. 5

Nýjustu fréttir

Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum
Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.