Sjávarútvegsskýrsla Íslandsbanka hefur verið gefin út síðan árið 2003. Er það ósk bankans að skýrslan gefi bæði beinum og óbeinum hagsmunaaðilum heildstæða mynd af umfangi og áhrifum sjávarútvegarins á íslenskt samfélag. Eins og síðastliðin ár naut bankinn liðsinnis Deloitte við umfjöllun um rekstur sjárvarútvegsfélaga og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Íslandsbanki hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á sérfræðiþekkingu í sjávarútvegi og virkum stuðningi við greinina. Íslandsbanki er meðal annars stoltur stuðningsaðili Íslenska sjávarklasans og Kvenna í sjávarútvegi.

Skýrsluna má nálgast hér