Er hlutlaus fjölmiðlun draumsýn?

Einhver umræða hefur átt sér stað undanfarið um fjölmiðla, hlutleysi eða hlutdrægni þeirra.

Mikilvægi öflugra fjölmiðla er óumdeilt fyrir bæði stór og smá samfélög. Öflugur fjölmiðill gegnir mikilvægu hlutverki fyrir almenning og héraðsfréttamiðlar hafa flestir það hlutverk að upplýsa íbúa í smærri samfélögum um mál sem snertir þeirra samfélag.

Blaðamenn mega hafa skoðanir

Ekki er óeðlilegt að ritstjórar og blaðamenn hafi skoðanir á hinum ýmsu málum eins og flestir hafa. Ritstjóri eða blaðamaður sem vill koma sínum skoðunum á framfæri gerir það undir nafni, helst í sérstakri grein, t.d. ritstjórnargrein.

Hins vegar er það hlutverk fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega að segja fréttir á sem hlutlausastan hátt. Leita allra sjónarmiða á málum og koma þeim á framfæri við lesendur.

Einföld ritstjórnarstefna

Einnig er mikilvægt fyrir hvert samfélag að hafa vökul augu yfir því sem betur má fara. Eyjamenn hafa verið duglegir við að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og oft tekist að ná athygli ráðamanna.

Frá því að undirritaður tók við fréttasíðunni Eyjar.net fyrir hart nær sex árum hefur fjöldinn allur borist af aðsendu efni, sem og ábendingum um fréttaefni. Ritstjórnarstefnan er einföld, allt efni sem ekki er rætið og undir beltisstað á rétt á sér.

Ég held því að allir þeir miðlar sem vilja láta taka sig alvarlega – og eru ekki að ganga erinda hagsmunaaðila – vinni í þágu almennings og til að reyna að þoka hverju samfélagi fram á við. Því svara ég spurningunni hér í fyrirsögninni neitandi.

 

Tryggvi Már Sæmundsson

 

Höfundur er ritstjóri Eyjar.net

 

Nýjustu fréttir

Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu
ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.