6-0

Það var merkilegt að þegar ferðamannastraumurinn var í hámarki til Íslands ákváðu þáverandi bæjaryfirvöld að taka ekki þátt í því ævintýri og leggja niður starf ferða- og kynningarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar.

Engin hefur því sinnt slíku starfi síðustu árin og á meðan bruna ferðamennirnir framhjá Landeyjahafnarvegi í þúsunda vís á dag. Þrátt fyrir að höfnin sé opin. Það veit enginn þeirra af Vestmannaeyjum.

Á Akureyri opnuðu bæjaryfirvöld hins vegar Akureyrarstofu. 

Á vef stofunnar segir að Akureyrarstofa sé heimahöfn menningar-, markaðs-, kynningar- og ferðamála hjá Akureyrarbæ. Jafnframt annast hún viðburðahald fyrir bæinn og samskipti við fjöldamarga skipuleggjendur viðburða í bænum. Miðpunktur starfseminnar er Akureyri en Akureyrarstofa hefur náið samstarf við aðila sem vinna á stærri svæðum s.s. Markaðsstofu Norðurlands og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. 

Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akureyri er rekin af Akureyrarstofu sem annast upplýsingagjöf til ferðamanna þegar þeir eru komnir til Akureyrar, auk þess að svara fyrirspurnum allsstaðar að úr heiminum. 

Akueyrarstofa rekur vefina www.akureyri.is og visitakureyri.is og annast markaðsstarf bæjarins á samfélagsmiðlum. 

Markmið starfseminnar er að Akureyri vaxi í hugum íbúa og gesta sem mjög áhugaverður áfangastaður fremur en viðkomustaður. Leiðarljós Akureyrarstofu og starfsmanna hennar er að Akureyri sem höfuðstaður Norðurlands, tryggi sinn sess sem vinsæll áfangastaður og búsetukostur, þekkt fyrir góða ferðaþjónustu allt árið og kraftmikið og gott líf.

Á Akureyrarstofu starfa sex starfsmenn. Ekki er hér verið að leggja til að Vestmannaeyjabær fari út í slík umsvif. En það gæti verið ágæt byrjun að endurvekja starf ferðamálafulltrúa. Sé réttur maður ráðinn í það starf er sú staða ekki lengi að borga sig upp. Bæjaryfirvöld hafa mælitækið á sinni hendi – já, í gegnum rekstur Herjólfs.

Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsgreinin í íslensku atvinnulífi í dag. Það virðist alveg hafa farið fram hjá forystumönnum í Vestmannaeyjum.

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.