Sláturtíð

Það er komið haust og sláturtíðin komin á fullan skrið. Mér skilst að hjá Norðlenska á Húsavík slátri þeir um 2000 stykkjum á dag.

Sláturhús ISAVIA slátraði þremur störfum í eyjum í vikunni. Sveinbjörn Indriðason heitir framkvæmdastjóri sláturhússins. Hann er með rúmar þrjár milljónir í laun á mánuði. Ekki veitir af, blóðugur upp fyrir haus í drápinu. Sjálfur sláturhússtjórinn er nú ekki af verri endanum, bóndi og dýralæknir úr Flóanum, minna má það nú ekki vera.

Frá því að flugfélagið Ernir hætti flugi hingað hefur ekki heyrst múkk frá dýralækninum, væntanlega nóg að gera við að moka flórinn, bæði heima við og á stjórnarheimilinu. Þetta gengur samt vonandi bærilega hjá ráðherranum og bóndanum, enda ráðherralaun bara ágæt og kúabúskapurinn niðurgreiddur af almenningi. Skilst að bændastéttin fái einhverja 13 milljarða á ári til að halda uppi atvinnu í sveitum svo maður tali nú ekki um fæðuöryggið. Æjá, bændur landsins fá sem sagt 3000 krónur á mánuði frá hverjum lifandi einstaklingi á landinu til þess að geta stundað sína atvinnu.

Af góðsemi sinni ætlar Sigurður Ingi að niðurgreiða flugsæti Vestmannaeyinga um 6000 krónur fyrir hvern þann sem ætlar að fljúga allt að þrisvar sinnum á ári. Það gera 36 þúsund krónur á ári enda niðurgreitt í báðar áttir.

Í viðtali við eyjar.net í síðasta mánuði sagði Hörður Guðmundsson forstjóri flugfélagsins Arna að þetta litla félag hefði greitt sláturhúsi ISAVIA yfir 100 milljónir. Er fólk hissa á því að innanlandsflugið sé að gefa upp öndina?

Í fyrra flugu 11.200 manns milli eyja og lands. Nú skulum við setja upp dæmi. Gefum okkur að 9600 flugsæti seljist með skosku leiðinni. Það gera niðurgreiðslur upp á 57.600.000 krónur. Bætum við launum framkvæmdastjóra ISAVIA, 36 milljónir á ári. Samanlagt gerir þetta 93.600 þúsund.

Í viðtali við Fréttablaðið 9. september sl. sagði Hörður Guðmundsson að opinber gjöld á hvert flug til eyja væru 8.389 krónur. Eins og áður sagði flugu 11.200 manns milli lands og eyja í fyrra. Skatttekjur af þeim er samtals 93.956.800 krónur. Við greiðum sem sagt með þessu reikningsdæmi niðurgreiðsluna til okkar sjálfra og laun framkvæmdastjóra sláturhússins.

Ég keyrði austur á Hornafjörð í síðustu viku. Í suðursveit er fjósið Flatey, stærsta og fullkomnasta fjós landsins byggt af miklum stórhug. Mér skilst að full kúað beri það um 700 kýr. Er kannski kominn tími til þess að við krefjumst meiri hagræðingar í landbúnaði og þar með lækkun niðurgreiðslna? Þar væri kannski hægt að finna nokkrar krónur til þess að niðurgreiða flugið.

Að lokum. Munið slagorð Mjólkursamsölunnar, mjólk er góð.

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.