Minning: Kristinn Guðni Ragnarsson

Æviágrip.  Kristinn Guðni Ragnarsson pípulagningameistari fæddist í Vestmannaeyjum 08. desember 1962. Hann lést á heimili sínu 25. október 2020.

Foreldrar hans voru Ragnar Guðnason sjómaður frá Steini f. 07. janúar 1942 í Vestmannaeyjum og Ásta Kristinsdóttir f. 08. ágúst 1942 frá Skjaldbreið í Vestmannaeyjum.

Kristinn Guðni átti eina systir, Guðrún Bjarný f. 06. október 1959 í Vestmannaeyjum. Eiginmaður hennar var Þorvarður Vigfús Þorvaldsson f. 20. nóvember 1956 d. 09. janúar 2015.

Kristinn Guðni giftist Sesselju Birgisdóttir f. 24. janúar 1962 í Keflavík, foreldrar hennar voru Guðrún Guðnadóttir húsmóðir í Keflavík, f. 3. september 1932, d. 02. apríl 1982 og Birgir Axelsson, fiskverkandi í Keflavík f. 21. ágúst 1932, d. 14. desember 2001.

Athöfninni hefst klukkan 13.00 í dag og verður henni streymt á netinu.

 

Kristinn Guðni Ragnarsson,  minning

Babú-babú öskruðu peyjarnir í Eyjum hlaupandi í halarófu gólandi í takt við sírenur slökkviliðsbílanna þegar kviknaði í og brunalúðurinn ómaði í fjöllunum svo það fór ekki fram hjá neinum hvað var í gangi. Kiddi var ekki hár í loftinu þegar hann var farinn að elta slökkviliðið þegar það var kallað út en afi hans og nafni, Kiddi á Skjaldbreið var slökkviliðsstjóri í Eyjum.

En það var ekki fyrr en Kiddi var kominn til sjós og léttlyndu félagarnir búnir að stofna æslafélagið Klakabandið að þeir fóru að kalla hann Kidda babú. Það þekkja fáir Eyjamenn Kristinn Guðna en nær allir vita hver Kiddi babú er. Þannig verða viðurnefnin að aðalnöfnum. Ég hef stundum verið að segja gömlum Eyjamönnum að Kristinn Guðni sé sonur hans Ragga í Steini og Ástu frá Skjaldbreið. Menn standa alveg á gati og kannast ekki við neinn Kristinn Guðna. Á hann Raggi í Steini peyja, ja hérna. Svo þegar maður segir já hann Kidda babú, já þú meinar, auðvitað veit ég hver hann er. Babú-inn, það þekkja hann allir. Þetta er stutta lýsingin á viðurnefnaútgáfu Eyjamanna.

Klakabandið var ekki klúbbur kórdrengja. Nei það var félagsskapur harðduglegra sjómanna, eyjapeyjar og pæjur sem kunnu tökin á lífinu þegar hart var sótt á sjóinn, tekjurnar miklar og skemmtanalífið í stórskalaútgáfu sem passaði vel við tekjurnar á sjónum. Þar var töluð hrein íslenska og engum hlíft og alls ekki þeim sem átti afa sem slökkviliðsstjóri. Austur-Þýskur Trabant var kostulegur bíll og Klakabandið pantaði sjö slíka til Eyja. Það mátti ekki minna vera. Þegar þeir höfðu keypt steríógræjur í bílanna kostuðu þeir tvöfalt verð því græjurnar voru dýrari en bílarnir. En þrátt fyrir dugnað á sjónum og mikilfenglegt Klakabandið gleymdi Kiddi ekki að undirbúa sig fyrir lífið. Hann náði að mennta sig sem pípulagningamaður milli úthalda og varð meistari í greininni 1988. Ég man vel eftir Kidda á þessum árum þó vinátta okkar hafi skotið rótum í Keflavík.

Hann var ótrúlega mikill Eyjamaður í sér og frá fyrstu kynnum fann ég hversu traustur maður hann var. Kiddi var öruggur með sig enda mikill verkmaður og hafði góða yfirsýn yfir verkefni sín sem pípulagningarmaður. Ég held að allt neftóbakið sem hann mokaði í fíngert nefið hafi opnað beina leið upp í heila, beint í æð fyrir hreina og klára hugsun. Hann tók samt stundum gamla Klakabandsfílinguna á þetta og við vinirnir áttum það sameiginlegt að vera stöðugt að taka á lífinu okkar, styrkleikum sem veikleikum.

Kiddi bætti meira í nefið þegar hann átti í vök að verjast í baráttunni við krabbann. Hann mætti þjáður til vinnu og mundaði rörtöngina með samanbittnar varir og svaraði verkjunum með stærri skömmtum af neftóbaki að hætti Týrara.  Hann ætlaði að klára stóra verkið sem hann tók að sér hjá Bygg hvað sem það kostaði, hann var jaxlalegur í vinnugallanum með neftóbakstaumana niður á höku og var að gera bestu vertíðina í lífinu. Hann var alltaf klár í fyrstu bauju en það var ekki nóg því baráttan við veikindin var barátta upp á líf og dauða.

Síðustu dagarnir voru heima í faðmi fjölskyldunnar. Börnin hans öll elskuðu hann og yngstu peyjarnir kölluðu hann alltaf afa babú. Kiddi var stoltur af viðurnefninu, ánægður með gömlu vinina og fjölskylduna alla sem elskaði hann. Þegar við tókumst í hendur í síðasta skipti sagði hann, „þetta er allt aftur á bak Ási minn.“ En ég held að nú keyri hann Trabantinn með himinskautum, fulllestað nefið af tóbaki, steríógræjurnar í botni og tekur gömlu sírenuna á þetta og kallar út í kosmóið babú-babú.

Ég votta Sesselju, foreldrum Kidda og fjölskyldunni samúð.

 

Ásmundur Friðriksson.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.