Undanfarna daga hafa starfsmenn frá FAST í Póllandi unnið í Herjólfi við að setja upp auka svefnrými um borð en kojurnar komu til landsins um mánaðarmótin. Verkið hefur verið að mestu unnið að næturlagi og því ekki tafið ferðir Herjólfs.

Um er að ræða 32 svefnrými en við það rúmlega tvöfaldast fjöldi svefnrýma um borð í skipinu.