Þeir sem þurfa að sitja í sóttkví samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda geta nú sjálfir skráð upplýsingar um það inn á vefinn heilsuvera.is og fengið vottorð þar að lútandi. Vottorðin eru án endurgjalds. Vakin er athygli á því að skráning í heilsuveru krefst þess að notandi sé með rafræn skilríki.

Þeir sem hafa ekki rafræn skilríki og geta ekki nýtt sér heilsuveru eiga að hafa samband við heilsugæslustöðina sína. Heilsugæslustöðin kemur upplýsingum um sóttkví viðkomandi til sóttvarnalæknis. Þar er hægt að óska eftir staðfestingu á sóttkví með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og skrá í efnislínu: Staðfesting á sóttkví.