Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skrifaði í dag undir samning við handknattleiksdeild ÍBV. Hönnu þarf ekki að kynna fyrir handboltaáhugamönnum en hún kemur til ÍBV frá franska liðinu Bourg-de-Péage. Hanna er alin upp á Selfossi og var markahæsti leikmaður efstu deildar þrjú ár í röð með liði Selfoss. Hanna á sterkar tengingar til Eyja en báðir foreldrar hennar eru fædd í Vestmannaeyjum. Hanna sagði í samtali við Eyjafréttir að hugurinn hefði stefnt heim til Íslands eftir fínt tímabil í Frakklandi og að hún væri mjög spennt fyrir komandi tímabili með ÍBV.