Í dag 1. september fellur pappírsafladagbók alfarið úr notkun sbr. reglugerð nr. 298/2020 um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga íslenskra skipa með rafrænni afladagbók eða snjalltækjaforriti. Nú ber öllum fiskiskipum að skila dagbókarskráningu inn áður en löndun hefst eftir hverja veiðiferð. Breytingin var kynnt  fyrst 14. janúar sl. og hefur appið verið aðgengilegt og virkt frá því í vor.

Mikilvæg fyrstu skref:

  1. Fara á vefinn aflaskraning.is
  2. Nota  íslykil útgerðar þar til að stofna aðgang fyrir bátinn
  3. Skrá þar skipstjóra: kennitölu og síma hans – (skipstjórinn þarf að vera með rafrænt auðkenni í símanum sínum)
  4. Tilgreina á vefnum aflaskraning.is hvaða veiðarfæri verður notað
  5. Þá fyrst skal virkja appið í síma skipstjórans

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um afladagbókarappið