Íbúum fækkar í Eyjum

Íbúum í Vestmannaeyjum fækkaði um 26 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. desember 2020. Úr 4358 í 4332 eða um 0,6%. Íbúar í Vestmannaeyjum voru 4304, 1. desember 2018. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands.

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 14,0% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 12 íbúa eða úr 86 í 98 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppur um 9,8% og Reykhólahreppi um 9,2%.  Þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili.

Fækkun í einum landshluta
Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,3% eða um 18 íbúa. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.352 íbúa.  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,8% eða um 54 íbúða.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.

X