Í tuttugasta og þriðja þætti er rætt við Silju Elsubetu Brynjarsdóttur um líf hennar og störf. Silja Elsabet, ræðir við okkur um lífshlaup sitt, fjölskylduna, söngnámið og margt fleira.
Einnig munum við fá að heyra Silju Elsubetu flytja lagið Ágústnótt af nýja disknum sem hún var að gefa út ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Diskurinn ber nafnið Heima, og inniheldur sönglög eftir Oddgeir Kristjánsson.
Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutta samantekt um pysjurnar, sem flögra nú til byggða og við Eyjaskeggjar og gestir keppumst við bjarga núna á kvöldin þessa dagana. Heimildir eru fengnar á lundi.is, heimaslóð.is og á vísindavefur.is. Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja.
Hægt er að nálgast þættina á Eyjar.net og einnig á helstu hlaðvarpsveitum t.d. Spotify.
Þátturinn á Spotify. (Í einhverjum vöfrum kemur ekki allur þátturinn í spilaranum hér að neðan). Því má nálgast þáttinn í hlekknum hér að framan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst